Má ég kjósa í sameiningarkosningunum?

Mynd: Elín Elísabet Einarsdóttir
Mynd: Elín Elísabet Einarsdóttir

Þjóðskrá hefur opnað fyrir rafrænan aðgang að kjörskrárstofni svo kjósendur geti með einföldum hætti kannað hvort þeir eru skráðir á kjörskrá í kosningunum sem fara fram 9.- 28. október næstkomandi. Ekki er flett upp í þjóðskrá heldur er flett upp í kjörskrárstofni. Að kjördegi loknum verður lokað fyrir aðgang að uppflettingunni.

Nánari upplýsingar má nálgast hér (Hvar á ég að kjósa? | Þjóðskrá (skra.is))

Hverjir mega kjósa?

Kjörskrár miða við íbúa með skráð lögheimili í Tálknafjarðarhreppi og Vesturbyggð 22 dögum fyrir fyrsta kjördag, þ.e. 17. september 2023. Íslenskir og norrænir ríkisborgarar sem eiga lögheimili í öðru hvoru sveitarfélaginu sem um ræðir og hafa náð 16 ára aldri á kjörtímabilinu geta kosið um sameiningu. Erlendir ríkisborgarar, 16 ára og eldri, sem átt hafa lögheimili á Íslandi í þrjú samfellt á kjörtímabilinu hafa einnig kosningarétt.