Íbúafundur á Bíldudal í dag, 5. október

Íbúafundir Vesturbyggð
Íbúafundir Vesturbyggð

Fjórir íbúafundir verða haldnir dagana 3. - 5. október nk. þar sem fjallað verður um tillögu um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar í eitt sveitarfélag. Á fundunum verður farið yfir kosningafyrirkomulagið og kynnt álit og stöðugreining samstarfsnefndar um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar. Að lokum verður opnað fyrir spurningar.

Í dag, 5. október verður fundað í Baldurshaga á Bíldudal kl.20:00

Íbúar eru hvattir til að mæta á fundina og kynna sér tillögu um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar í eitt sveitarfélag ásamt því að spyrja spurningar um sameiningartillöguna.

Hægt verður að horfa á fundina í beinni útsendingu á facebook síðu Vesturbyggðar.